Velkomin á heimasíðu stórliðs 3. flokks kvenna á Snæfellsnesi

SNÆFELLSNES

26.06.2009 15:28:22 / 3flokkurkvenna

Nokkrir punktar..


Jæja stelpur...

Þá ætlum við að taka síðuna í notkun á ný og nota hana óspart :)

Leikurinn sem átti að vera á mánudaginn 29. júní gegn Sindra hefur verið frestað um nokkra daga vegna rútuleysis.. Nánari upplýsingar um það mál koma hér inn þegar þær berast..

Hins vegar er næsti leikur gegn Þrótti Vogum, í Vogunum og það þann 1. júlí næstkomandi.. Upplýsingar varðandi brottfarartíma og þess háttar koma hér inn síðar.. 8)

Samæfing verður í Grundarfirði mánudaginn 29. júní kl.20.00.  Stendur hún yfir í 75 mín.  Reynt verður eftir fremsta megni að skipta upp í 2 lið og spila nokkurs konar æfingarleik.  Þær stelpur sem mættu í síðasta leik og tóku búninga með sér heim eru beðnar um að taka búningana með á æfinguna og skila þeim þar.

Einnig væri gríðarlega gott að þær stelpur sem sjá sér fært um að mæta tilkynni komu sína í kommentum hér að neðan, einnig þær sem ætla að tilkynna forföll..  Það er mjög gott að fá smávegis hugmynd um hvað margar mæta svo skipulagning æfingarinnar verði betri sem skilar sér að sjálfsögðu í skemmtilegri æfingu ;)

Með kveðju
Ragnar Mar Sigrúnarson
Þjálfari 3. fl. kvk. Snæfellsnes.

» 6 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  57  Alls: 63630
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti
Könnun

Engin könnun í gangi, athugaðu aftur seinna.
Klukkan
Þínir flokkar